fbpx
Mánudagur 21.júlí 2025
Eyjan

Fyrirmyndir

Egill Helgason
Laugardaginn 24. júlí 2010 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef áður skrifað að það sé rannsóknarefni hvernig Íslendingar fara að leita fyrirmynda í Bretlandi á síðasta hluta tuttugustu aldar. Á útrásartímanum var London svo orðin önnur höfuðborg okkar; hugmyndastraumarnir lágu þaðan til Íslands.

Þetta hefst að miklu leyti með frjálshyggjunni og thatcherismanum – sú stefna var flutt inn hrá frá Bretlandi. Davíð Oddsson verður svo forsætisráðherra, hann er áhugamaður um bresk stjórnmál. Fókusinn á það sem er að gerast í Bretlandi verður mjög þröngur – síðan kemur Samfylkingin sem hrífst mjög af hugmyndum og framgöngu Tonys Blair. Blair var í raun ekki annað en pínulítið útvötnuð útgáfa af Thatcher.

Bretland er samfélag þar sem ríkir feikileg stéttaskipting og ójöfnuður. Stjórnmálakerfið þar er staðnað í viðjum einmenningskjördæma sem tryggja sömu gömlu flokkunum völd á víxl –  og þarna ríkir ofurhallærisleg konungsætt. En það er fjármagnið sem ríkir ofar öllu í Bretlandi; peningar og óheft neysla. Það er arfleið Margrétar Thatchers og boðskaps hennar um að það sé ekki til neitt sem heiti samfélag og að það sé hægt að smætta öll mannleg samskipti niður í peninga.

Á meðan fórum við Íslendingar að líta niður á Norðurlöndin, þau samfélög sem við ættum jafnan að eiga mesta samleið með. Í frægri skýrslu Viðskiptaráðs stóð beinlínis að Íslendingar væru fremri Norðurlandabúum.

Og þá má ekki gleyma Þýskalandi. Hvað varðar stjórnarfar og efnahag er Þýskaland eitthvert best heppnaða ríki í veröldinni. Stjórnarskráin þýska er sérstaklega gott plagg. Þjóðverjar hafa áhuga á Íslendingum og eru fjarska velviljaðir í okkar garð. Þeir lesa meira að segja íslenskar bækur. Bretar hafa hins vegar aldrei haft neinn áhuga á Íslandi – nema kannski stutta hríð þegar Baugsmenn þvældust upp á aðalgötur breskra bæja með sjoppur sínar.

Jónas Kristjánsson mælir með því að við fáum Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, til að segja íslensku ríkisstjórninni til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Áslaug Arna aftur komin á laun þrátt fyrir námsleyfi – Fær 3,1 milljónir þar til varamaður tekur við

Áslaug Arna aftur komin á laun þrátt fyrir námsleyfi – Fær 3,1 milljónir þar til varamaður tekur við
Eyjan
Fyrir 1 viku

710 klukkustundir og 10 mínútur af þingfundum á árinu en bara 35 frumvörp af 131 samþykkt

710 klukkustundir og 10 mínútur af þingfundum á árinu en bara 35 frumvörp af 131 samþykkt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingfundur hefst kl. 10 – Þrjú mál á dagskrá fyrir sumarfrí

Þingfundur hefst kl. 10 – Þrjú mál á dagskrá fyrir sumarfrí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu