Friðrik Þór Guðmundsson, gamalreyndur blaðamaður, setur fram þarfa áminningu á heimasíðu sinni vegna birtingar rannsóknarskýrslu Alþingis.
— — —
Nú er framundan skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis. Ég skora á ritstjórnir allra fjölmiðla landsins að stíga á stokk og strengja þess heit að láta eignarhaldsmál og hagsmuni einstakra ritstjóra ekki flækjast fyrir fréttanefi sínu við matreiðsluna á niðurstöðum nefndarinnar. Óbreyttir blaða- og fréttamenn eiga að mínu viti í dag og á morgun að eiga hreinskilna fundi með rit-, frétta- og vaktstjórum sínum til að tryggja frjálsar hendur við upplýsingaöflun og upplýsingagjöf á næstu áríðandi vikum og mánuðum. 365 má á engan hátt hlífa Jóni Ásgeiri og fjölskyldu. Mogginn má á engan hátt hlífa ritstjóra sínum. Og svo framvegis.