fbpx
Föstudagur 13.júní 2025
Eyjan

Lög um fjármálafyrirtæki

Egill Helgason
Miðvikudaginn 7. apríl 2010 22:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lesandi síðunnar sendi þessar línur.

— — —

Í 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 segir orðrétt:

Stjórn fjármálafyrirtækis skal ekki taka þátt í ákvörðunum um einstök viðskipti, nema umfang þeirra sé verulegt miðað við stærð fyrirtækisins. Einstakir stjórnarmenn skulu ekki hafa afskipti af ákvörðunum um einstök viðskipti.
Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis skulu ekki taka þátt í meðferð máls ef mál varðar:
1. viðskipti þeirra sjálfra eða fyrirtækja sem þeir sitja í stjórn hjá, eru fyrirsvarsmenn fyrir eða eiga að öðru leyti verulegra hagsmuna að gæta í; eða
2. viðskipti samkeppnisaðila þeirra aðila sem ræðir um í 1. tölul.
Hið sama skal gilda um viðskipti aðila sem eru tengdir stjórnarmönnum persónulega eða fjárhagslega.

Auk framangreinds eru í gildi fyrirmæli FME ofl., lög um hlutafélög, alm. hgl. osfrv. sem er nokkuð ljóst að Jón, Pálmi og Lárus brjóta.

Það er kostulegt að þessir menn telji sig ekki bera nokkra ábyrgð á gjörðum sínum. Telur einhver læs maður að af hægt sé að gagnálykta út frá því að að afskipti stjórnarmanna eru bönnuð og komast að þeirri niðurstöðu að afskipti hluthafa séu því  ekki bönnuð?

Allir sem hagsmuna eiga að gæta, eftirlistaðilar og aðrir þátttakendur í þessu þjóðfélagi eiga nú að láta reyna á lagaramann. Siðað þjóðfélag horfir ekki upp á svona lagað aðgerðalaust.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Grínverjinn og skautunin

Ágúst Borgþór skrifar: Grínverjinn og skautunin
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóð vaknar en forsætisráðherra dormar áfram

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóð vaknar en forsætisráðherra dormar áfram
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip