Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um Guðrúnu frá Lundi, einn vinsælasta rithöfund á Íslandi á tuttugustu öld. Guðrún var sveitakona í Skagafirði sem lagði fyrir sig ritstörf á fullorðinsárum, og skrifaði meðal annars hinn sívinsæla bókaflokk Dalalíf.
Í þættinum verður rætt við Dick Ringler, en hann er bandarískur þýðandi Jónasar Hallgrímssonar. Ringler hefur skrifað mikla bók um Jónas sem nefnist Bard of Iceland og hefur hún nú verið gefin út undir merki Máls & menningar.
Guðmundur Andri Thorsson segir frá uppáhaldsbókum sínum.
Páll og Kolbrún ræða tvær þýðingar, Veginn eftir Cormac McCarthy og Kirkju hafsins eftir Ildefonso Falcones – og Bragi er auðvitað á sínum stað aftast í þættinum.