Fyrir helgi skrifaði ég í pistli að fréttamenn á Stöð 2 og Fréttablaðinu ættu að leggja sig fram um að upplýsa um eignarhald á 365 miðlum, sem eigendur þess reyna að halda leyndu – annað rýrði trúverðugleika þessara miðla verulega.
Og í gærkvöldi birti Stöð 2 frétt þar sem um þetta er fjallað.
Þar eru nefndir sem stærstu eigendur 365 Ingibjörg Pálmadóttir – sambýliskona Jóns Ásgeirs – Ari Edwald og Stefán Hilmarsson, en ekki fæst enn uppgefið hvaðan hlutafé að upphæð einum miljarði króna sem lagt var fram 1. apríl kemur.
Innbyrðis skipting hlutafjár á Morgunblaðinu fæst ekki uppgefin, en stærstu eigendurnir eru meðal annars stórútgerðir eins og Samherji, Krossanes, Rammi og Vísir, eða menn sem tengjast þessum fyrirtækjum.