Guardian fjallar um hið hryllilega myndband sem birtist á WikiLeaks og sýnir – að því er virðist – tilhæfulaus morð bandarískra hermanna á saklausu fólki í Bagdad, þar á meðal börnum og blaðamönnum sem unnu fyrir Reuters.
Myndbandið má sjá með því að smella hérna.
Í fréttinni er fullyrt að bandaríska varnarmálaráðuneytið, Pentagon, telji vefinn WikiLeaks vera ógnun við öryggishagsmuni Bandaríkjanna.