Vegtollar eru margreynd aðferð til að byggja upp ný samgöngumannvirki.
Sums staðar eru þeir reyndar notaðir til að takmarka umferð, eins og til dæmis í Osló þar sem er tekið gjald af þeim sem aka inn í borgina.
Höskuldur Þórhallsson segir að vegtollar séu skattur á landsbyggðina.
En í höfuðborginni búa menn við stöðumæla – líklega eru stöðumælaverðir í Reykjavík einhver ötulasta stétt landsins.
Ég hef samt aldrei heyrt neinn halda því fram að stöðumælasektir eða stöðumælagjöld séu sérstakur skattur á Reykvíkinga.