Gauti B. Eggertsson, hagfræðingur í New York, skrifar um úthlutun makrílkvótans og segir að ríkisstjórnin fái algjöra falleinkun.
„Í stað þess að bjóða þessa veiði til hæstbjóðenda ákveður ríkisstjórnin að gefa fiskinn nokkrum útvöldum?
Enginn hefur útskýrt af hverju. Ef olía finnst við Íslandsstrendur, verður hún þá kannski gefin? Og hver fær hana þá? Og af hverju? Nú hefur til að mynda Bandaríkjastjórn undir stjórn Obama ákveðið að bjóða út olíuverkun fyrir hæstbjóðendur — í opnu útboði — við strendur beggja vegna meginlandsins hér í USA.
Af hverju er ekki hægt að bjóða út nýtingu náttúruauðlinda með sama hætti heima á Íslandi? Auðlinda sem með réttu ætti að vera eign almennings, og verða til þess að skattar á almenning eru lækkaðir að sama skapi og arðinum nemur (og ekki veitir af nú til dags!),
Af hverju þarf að gefa þessar auðlindir nokkrum útvöldum aðilum?
Hvaða rugl er þetta eiginlega?„