Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir eru mjög sérstakir viðskiptamenn.
Með biluðum viðskiptaævintýrum sínum tókst þeim að sökkva íslenska sparisjóðakerfinu að stórum hluta – og lífeyrissjóðir á Íslandi hafa tapað stórfé á viðskiptagjörningum bræðranna. Skuldasúpan sem þeir skilja eftir nemur mörg hundruð milljörðum króna.
Það má einfaldlega segja, og þarf ekki að flækja máin umfram það, að þetta séu einhverjir lélegustu bisnessmenn í heimi. Árangurinn talar sínu máli.
Samt virðist ríkja sú trú í kerfinu að þessir menn séu ómissandi – þá líklega vegna hæfileika sinna til að reka fyrirtæki. Og þá þarf auðvitað að borga þeim góð – samkvæmt þessari frétt fær annar bróðirinn, Ágúst, 100 milljónir á ári fyrir að stýra Bakkavör, félagi sem nú hefur verið sett undir nauðasamninga.