Norski vefurinn ABC Nyheter er með frétt um WikiLeaks manninn Julian Assange og meint eftirlit bandarískra leyniþjónustumanna með honum – og íslenskan samstarfsmann hans sem á að hafa verið yfirheyrður í tuttugu og eina klukkustund af íslenskri lögreglu.
Í fréttinni er einnig rætt við utanríkisráðherra Íslands sem segist ekkert vita um málið.
Og við Birgittu Jónsdóttur alþingismann sem telur að sé fylgst með sér og að sími sinn hafi verið hleraður.
„Síðustu dagana hafa skrítnir hlutir gerst með símann minn, og ég tel líklegt að verið sé að hlera mig,“ hefur norski fjölmiðillinn eftir Birgittu.