fbpx
Þriðjudagur 10.júní 2025
Eyjan

Eldgos og skötuselur koma ríkisstjórninni til bjargar

Egill Helgason
Föstudaginn 26. mars 2010 13:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stundum er sagt að vika sé langur tími í pólitík. Og það er víst að ansi margt getur breyst á viku.

Fyrir viku voru háværar kröfur um breytingar á stjórninni, jafnvel að hún færi frá.

Nú er eins og hún hafi fengið smá frið.

Það kom eldgos og athygli fjölmiðlanna beindist þangað. Útgerðarmenn fóru í mikinn leiðangur vegna skötusels – og ríkisstjórnin uppskar samúð.

Icesavemálið hefur legið í láginni síðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hugsanlega er mesti hitinn farinn úr því.

Það er rifist um súlustaði, mál sem fellir enga ríkisstjórn.

Og það er að koma páskafrí.

Innan stjórnarflokkanna eru talað um að stjórnarsamstarfið megi alls ekki bresta; vinstri hreyfingin á Íslandi fái ekki slíkt tækifæri aftur. En þá þurfi að drífa í tvennu, að taka af alvöru á skuldum heimilanna (án þess að afskriftir séu skattlagðar) og koma órólegu deildinni í VG aftur inn í ríkisstjórn í líki Ögmundar Jónassonar.

Þar eigi við fleyg orð Johnsons Bandaríkjaforseta:

Betra sé að hafa hann inni í tjaldinu pissandi út, en fyrir utan, pissandi inn í tjaldið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag

YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal
Eyjan
Fyrir 1 viku

„Þetta var kannski viðbúið, en ekki eru þetta gleðitíðindi“

„Þetta var kannski viðbúið, en ekki eru þetta gleðitíðindi“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK

Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Samkeppnishæfni Íslands er málið

Thomas Möller skrifar: Samkeppnishæfni Íslands er málið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir skrifar: Búvörulagadómur Hæstaréttar

Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir skrifar: Búvörulagadómur Hæstaréttar