Hún er stórdularfull fréttin um að aðstandendur Wikileaks séu undir eftirliti hér – og að það tengist bandarískum stjórnvöldum.
Um þetta segir í frétt Ríkisútvarpsins í kvöld:
„Julian Assange segist hafa það staðfest úr farþegaskrá flugvélar sem hann fór með héðan til Kaupmannahafnar á leið til fundar með blaðamannasamtökum í Ósló fyrir nokkrum dögum, að tveir leyniþjónustumenn hafi veitt sér eftirför og fylgst með sér á leiðinni.
Þá segir Assange frá því að ungur samstarfsmaður Wikileaks hér á landi hafi verið handtekinn af íslensku lögreglunni á mánudaginn var og yfirheyrður í 21 klukkustund í tengslum við vinnslu fyrrnefnds myndbands. Manninum hafi verið sýndar myndir, teknar úr launsátri, af Assange og minntur á að hátt settir íslenskir menn hefðu áhyggjur af gjörðum hans. Loks greinir Assange frá því að Wikileaks hafi skrifað bandarískum og íslenskum stjórnvöldum bréf þar sem þeir krefjist skýringa á þessum atburðum.“
Þetta er mál sem þarf að upplýsa hið snarasta.