Lesandi síðunnar sem kallar sig Glaum sendi þessa samantekt, eins konar „annál“ endurreisnarinnar.
— — —
1. Það verður uppreisn ef gengið verður að kröfum Breta og Hollendinga um greiðslu IceSave segir Steingrímur J. í stjórnarandstöðu.
2. Búsáhaldabyltingin og kosningaloforðin.
3. Neyðarlögin fest í sessi og mismunun sparnaðarforma þar með. Fordæmi sett fyrir IceSave.
4. Glæsilegir IceSave samningar handsalaðir.
5. Tug milljarða dælt í fjárglæfrafyrirtækið Sjóvá.
6. Tugum millljarða dælt inn í hrunda banka og fjármálafyrirtæki.
7. Framleiðslufyrirtækið HS Orka selt úr landi á spottprís vegna fjárskorts.
8. Fyrirvarar settir við stórgallaðan IceSave samning.
9. Afskriftir fastar í bönkunum en flytjast ekki til skuldara. Kúlulánafólk og hrunverjar stýra skuldaaðlögun úr bönkunum.
10.Jóni Ásgeiri og Högum boðið upp á ríflegar afskriftir í 1998. Jón sinnir auk þess ráðgjafastörfum fyrir þrotabú Baugs í Bretlandi enda hæfastur til að gera verðmæti úr því sem hann eyðilagði.
11.Kúlulánaþegar ráðnir forstjórar bankanna og bankasýslunnar.
12.Pólitískt skipaðar skilanefndir og slitastjórnir eignast bankana.
13.Samfylkingin ræður kúlulánþega úr Landsbanka og pólitíska handlangara í tugatali án auglýsingar.
14.Björgólfi Thor gefinn sæstrengur og skattaafsláttur gegn hugmynd um gagnaver á MIðnesheiði.
15.Allir skattar hækkaðir á landsmenn en eignir bankaræningja afþýddar.
16.Vistabönd og gjaldeyrishöft innanlands á meðan fyrrum bankastjórar sleikja sólina og útrásarvíkingar lifa í vellystingum í London og Lux.
17. Það er réttlátt að íslenskur almenningur borgi reikninga lítils hóps spákaupmanna segir Steingrímur J. í ríkisstjórn í viðtali við norskt dagblað.
18. 11.1.2010 Ríkisstjórn Íslands tekur formlega afstöðu með Hollendingum og Bretum í IceSavedeilunni.
19. Forstöðumaður IceSave í Bretlandi metinn hæfastur til að hámarka verðmæti hnignandi þrotabúsins sem standa á undir 1200 milljarða skuld bankans
20. FL Group, Exista, Eimskip, Egla og Atorka fá nauðasamninga til að komast hjá rannsókn á bókhaldi og til þess að lífeyrissjóðir og bankar geti afskrifað óheyrilegt tap í leynum. Litla hluthafanum sýndur fingurinn en skatturinn sér í gegnum fingur sér. Engin opinber rannsókn framkvæmd.
21. Óbreyttar stjórnir lífeyrissjóða frá því fyrir hrun liggja feitar í fleti og styðja.
22. Norræna velferðarstjórnin setur upp leikritið “Fyrnum kvótann – sameign þjóðarinnar” við frábæra aðsókn en hættir sýningum vegna gagnrýni lénsherranna sinna.
23. Svartri skýrslu Ríkisendurskoðunar um stórfellda kostun auðhringja á stjórnmálamönnum stungið undir stól. Forseti þings þegir.
24. Ólína og Gylfi setja upp tvíleikinn “Burt með bankaleyndina”.
25. Ríkistjórnin fullyrðir að gengið lagist eftir kosningar, eftir umsókn um inngöngu í ESB, eftir endurreisn bankanna, eftir samþykkt IceSave, eftir afgreiðslu IMF, eftir jól, eftir helgi, eftir eitthvað… annars farið þið til helv…en ekki lagast gengið.
26. Skattlagning á frestuðum hagnaði felld niður nema hjá þeim voru svo vitlausir að borga hann á réttum tíma.
27. Sjóvá og Skeljungur sett í “opið” söluferli til þeirra sem eiga meira en 500 milljónir og heita Guðbjörg Matthíasdóttir. Kjölfestufjárfestar úr hópi vildarvina óskast eingöngu. Loforðum um dreifða eignaraðild og aðdáun á litlum og meðalstórum aðilum stungið undir stól. Einokun og fákeppni styrkt.
28. Sparnaður innistæðueigenda sem tryggður var með dýrkeyptum loforðum hrunstjórnarinnar brennur upp í bönkunum á meðan vildarvinir og afskriftakóngar fá einir að taka þátt í endurreisninni. Til hvers voru innistæður tryggðar?
29. IceSave sem Steingrímur vill borga komið í rúma 500 milljarða. Samt bólar ekkert á boðaðri uppreisn hjá Steingrími í stjórn. Sjá lið 1.
30. Fyrstu ákærur vegna bankahrunsins birtar ungmennum sem mótmæltu á þingpöllum.
31. Stjórnlagaþing! Til hvers – þið hafið Eurovision.
32. Arion banki afhendir Ólafi Ólafssyni Samskip enda telst hann manna hæfastur til að til að sigla félaginu af hafsbotni þaðan sem hann kom því með óstjórnlegri skuldsetningu. Skuldabagginn skilinn eftir hjá Kjalari skv. samræmdri verklagsreglu fjárglæfrafyrirtækja um skuldaaðlögun vildarvina. Einokun, okur og fákeppni styrkt.
33. Jóhanna býsnast yfir ástandinu í Kastljósi.
34. Nýafskrifaður kúlulánadrengur frá Jóni Ásgeiri ráðinn til að stýra eignaumsýslufélagi Íslandsbanka.
35. Arion banki setur skuldir Jóns Ásgeirs í Högum á markað eftir að hafa samið við pabba hans um að hann fengi að halda völdum í fyrirtækinu. Einokun, okur og fákeppni styrkt.
36. Málsvarar jafnaðarmanna, Össur Skarphéðinsson og Árni Þór, gangast við því að hafa hagnast um 50 m.kr. á pólitískum aðstöðumun í Spron.
37. Samfylkingarvindhaninn snýst um 180 gráður í IceSave. Vinstrigufurnar skildar eftir með svarta pétur.
38. Viðskiptaráðherra búsáhaldabyltingarinnar, Gylfi Magnússonar, leggur fram frumvarp um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem staðfestir áframhaldandi bankaleynd í spilltasta ríki á norðurhveli þar sem allar opinberar stofnanir og eftirlitsaðilar brugðust. Nýtt veiðileyfi á almenning gefið út.
39. Ríkið undirbýr að dæla tug milljarða í fjárglæfrafyrirtækið Byr.
40. Skurðstofu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja lokað vegna fjárskorts og niðurskurðar.
41. HS Orka skilar afkomu upp á 8 milljarða eða sömu upphæð og OR lánaði Magma til að kaupa gjaldeyrisskapandi framleiðslufyrirtækið með þöglu samþykki norrænu velferðarstjórnarinnar. Hagnaðurinn einkavæddur en tapið niðurgreitt af eigendum OR. Sjá lið 7.
42. Ríkisbanki afléttir persónúlegum ábyrgðum forstjóra Icelandic group og verðlaunar hann með mánaðarlegum greiðslum upp á 30.000 Evrur eftir að bankinn hefur tekið nettan kennitölusnúning á erlendum kröfuhöfum. Mönnunum sem keyrðu félagið í þrot treyst best til að endurreisa það. Beinn stuðningur ríkisins við lénskerfi í sjávarútvegi og einkaaðgengi að erlendum gjaldeyri.
43. Stjórnvöld falbjóða gjaldeyrisskapandi eilífðarvélina Búðarhálsvirkun til erlendra “fjárfesta” á meðan íslensku framtaki er hafnað. Áframhaldandi afsal orkuauðlindanna til auðhringa og braskara.
44. Íslenska heimavarnarliðið mótmælir nauðungaruppboðum á heimilum fólks.
45. “Glæsilegar” endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans liggja vaxtalausar í Tower of London á meðan vaxtapúkinn fitnar.
46. Verkalýðshreyfingin situr aðgerðalítil hjá á meðan tekjur útflutningsfyrirtækja tvöfaldast vegna gengisfalls krónunnar en kaupmáttur launþega helmingast.
47. Ögmundur krossar sig yfir því endurtekin einkavinavæðing, spilling, mismunun, sjálftaka og fyrirgreiðsla í fjárglæfrakerfinu eigi sér stað á methraða á vakt VG og Samfylkingar.
48. 5000 Íslendingar kjósa með fótunum.
49. Stjórnvöld hafna afskiptum af sjálftöku skilanefnda úr þrotabúum banka, nýspillingu í fjárglæfrafyrirtækjum, erfiðleikum heimila og fyrirtækja eða nokkru því sem kallar á stefnufestu og jöfnuð.
50. Opinberir aðilar og myntkörfulánaskuldsetningafíklar í Reykjanesbæ ábyrgjast 1000 milljóna króna áhættufjárfestingu gegn áhættulausri hugmynd ofurskuldugs “fjárfestis” að einkasjúkrahúsi á Vellinum fyrir auðmenn sem vilja kaupa sig fram fyrir almenning í heimalandinu.
51. Héraðsdómari sýnir fjárglæfrafyrirtækjum hvað stendur í lögunum um ólægmæti gengistryggðra lána.
52. 80% Íslendinga afneita Bónuspabba sem kvartar undan einelti.
53. Staðfest í skýrslu Neytendasamtakanna að þeir sem hafa lægstu tekjurnar skulda helming af heildarskuldum heimilanna. Seðlabankanum láist að taka lágmark neyslu íslenskra heimila inn í útreikninga á greiðsluþoli.
54. Starfsmönnum ríkisbankans, NBi, lofað ríkulegum bónusum ef þeir ná að kreista allt sem hægt er út úr skuldugum og tekjulitlum heimilum landsins.
55. Stjórnendur stærstu lifeyrissjóða landsins sem töpuðu tugmilljörðum af fé sem lífeyrissjóðunum var trúað fyrir með kaupum á hlutabréfum í Exista slá skjaldborg um brennuvargana og sjálfa sig í leiðinni.
56. Tjón af völdum sögulegra náttúruhamfara í Chile metið á 400 milljarða. Það jafngildir tæplega helmingi af skuldum tengdum Baugi og er vel undir skuldbindingum Björgólfanna og Kjartans í Englandi sem ætlast er til að 320.000 eyjarskeggir ábyrgist með IceSave samningi.
57. Jóhanna og Steingrimur kjósa með rassgatinu, neita að styðja eigin lög og úrskurða fyrstu þjóðaratkvæðagreiðsluna frá lýðveldisstofnun sem tilgangslausan skrípaleik.
58. Yfir 90% Íslendinga hafna því að taka á sig skuldir bankaræningja og skrifa undir risavíxil þeim til björgunar.
59. Kúlulánakóngur frá Glitni, handgenginn Magma Energy, ráðinn framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun án auglýsingar.
60. Stjórnvöld staðfesta stærstu eignaupptöku Íslandssögunnar frá landnámi með lögum sem gera stóran hluta landsmanna að leiguliðum í íbúðum sem endurreistu fjárglæfrabankarnir hafa náð undir sig.
61. Keflavíkurflugvöllur gerður að heimavelli ECA herþotuliðsins við fögnuð VG enda nauðsynlegt að liðka til og sama hvaðan gott kemur.
62. Stjórnvöld sem hingað til hafa verið úrræðalaus gagnvart spillingu og sjálftöku skipulagðra glæpahópa setja neyðarlög á launafólk í verkfalli. SAASÍ glottir við tönn.
63. Samfylking, Framsókn og Sjálfstæðis leggja blessun sína yfir sölu auðlinda Suðurnesjamanna til jarðefnabraskarans í Magma.
64. Stjórnvöld undirbúa lög um ívilnanir til að auðvelda íslenskum hýenum með heimilisfesti í London og Sviss að skuldsetja landið í annað sinn.
65. Norræna velferðarstjórnin setur neyðarlög á sólbaðsstofur.