Maður finnur hvernig doðinn leggst yfir þjóðmálaumræðuna.
Nú þegar hinni umdeildu þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave er lokið.
Það er áberandi lítið líf í bloggheimum.
Stjórnmálin virðast ekki bjóða upp á neitt annað en stagl.
Mótmælaaðgerðir á Austurvelli eru fámennar – mótmælendur eru farnir að rífast innbyrðis.
Það er beðið eftir skýrslu Alþingis – helsta viðkvæðið um hana er að það sé örugglega ekkert í henni.
Og svo koma sveitarstjórnarkosningar sem vekja lítil viðbrögð annað en áhugaleysi.