Eftir hrun var reynt að ljúga því í erlenda fjölmiðla að konur hefðu tekið völdin á Íslandi og væru að þrífa upp skítinn eftir karlana.
Það mátti lesa þetta í útlendum fjölmiðlum – þar sem þessi saga var tekin upp hrá.
Ég frétti af því um daginn að hingað hefði komið blaðakona frá þekktum fjölmiðli og ætlað að skrifa þessa sögu.
En þegar hún komst að því að hún var ekki sönn varð hún mjög ókát.
Ein kona er bankastjóri stórum íslenskum banka. Nú er búið að endurráða hana, en við afar litla hrifningu.