fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Eyjan

Afmæli Sinfóníunnar

Egill Helgason
Fimmtudaginn 18. mars 2010 16:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sinfóníuhljómsveitin er toppurinn á því blómlega tónlistarlífi sem er stundað á Íslandi. Þetta tónlistarstarf er – eða ætti að vera – eitt helsta stolt þjóðarinnar.

Þetta er þeim mun merkilegra vegna þess að fyrir nokkrum mannsöldrum var eiginlega engin tónlist á Íslandi. Svo hafði verið um aldaraðir. Ég bý í mjög gömlu húsi. Hér bjó á nítjándu öld maður sem þótti nokkuð einstakur í bæjarlífinu vegna þess að hann hafði kennt sjálfum sér að spila á fiðlu.

Sinfónían er sextíu ára um þessar mundir. Fyrst spilaði hún í Austurbæjarbíói. Mér er sagt að fyrstu áratugina hafi ýmsir hljóðfæraleikarnarnir átt það til að spila feilnótur og falska tóna.

Svipurinn á tónleikagestunum hafi stundum verið skrítinn, en þeir tóku viljann fyrir verkið.

Þetta er ekki áhyggjuefni lengur. Sinfóníuhljómsveitin er prýðilega góð.

Stefnt var að því að halda afmælið í nýja tónlistarhúsinu, en það verður ekki. Byggingasaga hússins er orðin mikil sorgarsaga eins og margt annað sem tengist hofmóði útrásaráranna. Í raun er sérstakt verkefni að rannsaka það ferli allt eins og Baldur Andrésson arkitekt hefur bent á.

Ég ætla ekki að fjalla um það núna heldur gera litla játningu.

Mér finnst Háskólabíó fallegt hús. Kannski af því ég er svo vanur því, kannski af því mér líður vel þegar ég kem þangað inn – og af því ég er alinn upp þarna í grendinni.

En það hefur lengi verið talað illa um Háskólabíó – að húsið sé fyrir neðan virðingu Sinfóníunnar. Jú, hljómburðurinn er ekkert sérstakur. En hljómsveitin  hefur samt vaxið og dafnað þar innandyra, og nú situr hún nánast ein að gamla stóra salnum. Því miður hafa bíósýningar þar nánast verið aflagðar.

Sinfóníunnar bíður líka erfitt verkefni – nefnilega að fylla upp í salinn í Tónllistarhúsinu þegar þangað kemur. Hann rúmar sautján hundruð manns, skilst mér, Háskólabíó innan við þúsund. Það verður ekki alveg einfalt dæmi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Margir sem náð hafa hálfs árs aldri hafa komið minna í verk

Margir sem náð hafa hálfs árs aldri hafa komið minna í verk
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Myndum við berja hvolpa til bana með lurk eða drekkja hundum?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Myndum við berja hvolpa til bana með lurk eða drekkja hundum?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“