Það eru veittir alls kyns styrkir til vísinda- og rannsókna og til íþrótta. Til menningar- og listastofnana.
En það er út af listamannalaununum sem allt verður brjálað reglulega. Samt eru ekki stórar fjárhæðir þar í húfi.
Skyldi ein skýringin vera sú að listamannalaun er hægt að tengja við andlit – en aðrar styrkveitingar eru „andlitslausar“?