Sú saga gengur fjöllunum hærra að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé komin í prentun, að hún sé prentuð í Odda undir lögreglueftirliti.
Svo ekkert leki út.
Þessi skýrsla er mikilvæg. Og það er mikill prófsteinn á íslenskt stjórnkerfi hvernig hún er framsett.
Það er fjarskalega mikilvægt að niðurstöður hennar séu skýrar. Að þær séu ekki settar fram í löngu og óljósu máli.
Maður verður að vita nákvæmlega hvað nefndin er meina hverju sinni.
Hún má semsagt ekki vera hvítþvottur, og ekki moðsuða heldur.