Orkubloggarinn Ketill Sigurjónsson skrifar ítarlegan pistil um orkuverð til álvera á Íslandi, hið mikla leyndarmál sem sagt er að verði upplýst um miðjan næsta mánuð. Segir meðal annars í pistlinum:
„Hvers megum við vænta? Ef allt hefur verið með eðlilegum hætti í starfsemi og ákvarðanatöku hjá íslensku orkufyrirtækjunum, ættu álverin að vera að greiða a.m.k. 40 mills pr. kWh fyrir raforkuna. Og nýjasta álverið – álver Alcoa á Reyðarfirði – ætti að vera að greiða a.m.k. 50 mills fyrir nýjasta græna rafmagnið frá Kárahnjúkavirkjun.
EF Rio Tinto Alcan, Alcoa og Century Aluminum eru a greiða lægra verð fyrir íslensku raforkuna, þá er það einfaldlega úr öllum takti við veruleika áliðnaðarins í veröldinni. EF orkuverðið er lægra, þá eru íslensku orkufyrirtækin að undirverðleggja raforkuna m.v. það sem gerist á hinum alþjóðlega álbræðslumarkaði. Og þá er almenningur á Íslandi í reynd að niðurgreiða rekstrarkostnað álveranna með óeðlilegum hætti. EF.“