fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Eyjan

Eddan

Egill Helgason
Sunnudaginn 28. febrúar 2010 01:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er afskaplega lítið fyrir mannfagnaði núorðið. Fór beint heim af Eddunni eftir athöfnina í gær. Það er alltaf skrítin spenna á svona samkomum þar sem mikið af stórum egóum koma saman. Í gær voru menn dálítið undrandi yfir því hvað Veðramót, mynd Guðnýjar Halldórsdóttur, bar lítið úr býtum. Var það alveg réttlátt?

Kompás og Út og suður fengu verðlaun saman. Það mætti kannski sameina þessa þætti í einn og kalla hann Norður og niður?

Annars finnst mér Eddan bera vott um hvað við búum í einkennilega athafnasömu samfélagi. Ísland hefur íbúatölu borgar eins og Stoke. Ég man að eitt sinn var talað um kommuvilluna, að það komma hefði verið sett á vitlausan stað – við Íslendingar værum í raun 3 milljónir en ekki 300 þúsund.

Bókaútgáfan hérna ber líka vott um þetta og fjölmiðlarnir. Ég var á fundi hjá Blaðamannafélaginu um daginn þar sem menn höfðu uppi ógurlegt svartagallsraus um fjölmiðlana hér. Ég er bara alls ekki sammála. Fjölmiðlunin hér er fáraánlega mikið og öflug miðað við stærð samfélagsins.

Fjölmiðlarnir tapa hérumbil allir peningum vinstri og hægri – sumir miklum peningum – en samt halda þeir áfram að starfa. Það ber vott um menningarlegan metnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“