Lesandi sendi þessar línur:
— — —
Það er ekkert nýtt að þeir snauðu hnýta í auðvaldið. Ég er viss um að vel ort vísa var sárari fleinn í hold en blogg og athugasemdir netsins í dag.
Bólu-Hjálmar (1796-1875) orti:
Er það gleði andskotans,
umboðslaun og gróði,
fémunir þá fátæks manns
fúna í ríkra sjóði.
Sigurður Breiðfjörð (1798-1846) orti:
Það er dauði og djöfulsnauð
er dyggðasnauðir fantar
safna auð með augun rauð
er aðra brauðið vantar.