Sigrún Davíðsdóttir fjallar um lífeyrissjóðina, samfélagslega ábygð og flókna hagsmuni sem þeir gæta. Í pistinum segir meðal annars um samkrull lífeyrissjóða, Kaupþings og Exista:
— — —
„Lítum á kaup þriggja stærstu lífeyrissjóðanna í einni blokk viðskiptalífsins sem var: Kaupþingi, Existu og Bakkavör – nátengd fyrirtæki. Sjóðirnir þrír auka hlut sinn í Kaupþingi milli áranna 2006 og 2007, eiga því orðið meira í Kaupþingi í árslok 2007 en árið áður. Þar sem eignin í Kaupþingi varð núll í árslok hrunársins kemur eignaþróun sjóðanna ekki fram í ársreikningum – en það væri áhugavert að vita hvort sjóðirnir keyptu áfram í bankanum þar ár.
Hvað varðar Existu eiga allir sjóðirnir orðið meira í því félagi í árslok 2007 en árið á undan. Ofurhækkanir á Existu fyrrihluta árs 2007 vekja athygli: félagið hækkaði um tæp 50 prósent frá áramótum fram í ágúst 2007. Kaupþing hækkaði um 35% á sama tíma. Í lok 2007 var hækkunin gengin til baka en hlutur lífeyrissjóðanna orðinn stærri. Það er áleitin spurning hvort lífeyrissjóðirnir áttu hlut í hækkunum 2007 með fjárfestingum sínum. Í Bakkavör er framvindan sú að í lok 2008 eiga bæði sjóðir ríkisstarfsmanna og verslunarmanna meira, Gildi á orðið minna en í árslok 2006. – Þar sem íslensk hlutabréfaeign sjóðanna skilaði slæmri ávöxtun 2006 þurfti góðar ástæður til að auka eign í íslenskum hlutabréfum. Sama á við um skuldabréfakaup sem er annar kafli í sögu lífeyrissjóðanna undanfarin ár.
Í september 2008, rétt fyrir bankahrunið, kippa stærstu eigendur Existu, bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir kjarnaeign Existu, Bakkavör, yfir í eigið eignarhaldsfélag. Í Existu var umdeild hlutafjáraukning í árslok 2008. Í lok 2008 losaði hlutur áðurnefndra þriggja sjóða heil sextán prósent í Bakkavör
Lífeyrissjóðirnir eru því þarna yfir og allt um kring sem eigendur og skuldabréfaeigendum í þessum félögum en kröfu um gagnsæja stjórnarhætti gætir ekki. Forsvarsmenn Existu voru kærðir í fyrra til sérstaks saksóknara fyrir Bakkavararflutninginn – þó ekki af lífeyrissjóðum heldur Arion og skilanefnd Kaupþings. Finnur Sveinbjörnsson hefur sagt í fjölmiðlum að þeir bræður hafi gengið um félögin á skítugum skónum – stór orð, og þó er bankastjóri Arion annars ekki stóryrtur.“