fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Eyjan

Skýrsla aldamótanefndar

Egill Helgason
Þriðjudaginn 23. febrúar 2010 10:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveinn Andri Sveinsson lögmaður skrifar grein sem er birt í vefritinu Herðubreið. Hann rifjar upp skýrslu svokallaðrar Aldamótanefndar Sjálfstæðisflokksins sem starfaði árið 1989. Formaður nefndarinnar sem samdi skýrsluna var Davíð Oddsson.

Í henni sagði um aðild að Evrópusambandinu:

„Við hljótum að vinna heimavinnuna með þeim hætti að laga eigið efnahagslíf og leikreglur þess að því sem viðgengst á Vesturlöndum. Við getum aldrei aftur lýst því yfir að í þessu landi verði ekki beitt þeim úrræðum, sem best hafa reynst í þessum heimshluta. Við hljótum að setja okkur það mark að aldrei aftur þurfi þessi þjóð að hokra undir handafli ofstjórnar og kreppuhugsunarháttar, miðstýringar og mismununar….

Hugsanlega verður þó skynsamlegast að óska beinlínis eftir viðræðum um inngöngu Íslands í Evrópubandalagið, þótt menn séu um leið reiðubúnir að láta inngöngu ráðast af því, hvort þau skilyrði, sem henni kunna að fylgja, þyki aðgengileg eða ekki. Verði sú niðurstaðan, að þau séu óaðgengileg talin, hafa menn heldur engar brýr brotið að baki sér. Og þrátt fyrir allt er líklegt að smæð okkar verði okkur styrkur ásamt með því að við erum að véla við bandalagsþjóðir okkar í Atlantshafsbandalaginu og margar hefðbundnar vinaþjóðir, þar sem við njótum trausts.

Það er því óheppilegt að borið hefur á því, að við séum sjálfir að búa okkur til skilyrði og mála skrattann á vegginn og þar með að veikja okkar eigin samningsstöðu er við mætum með sjálfskapaða annmarka til viðræðna við Evrópubandalagið.

Við megum síst af öllu ganga að þessu viðfangsefni með þrá um forna innilokun og einangrun, alteknir af ótta og kjarkleysi. Við verðum að sýna reisn og styrk og forðast einangrunarþörf og minnimáttarkennd. Til slíkra viðræðna hljótum við að ganga sannfærðir um það að reyna að ná fram hinu besta, en jafnframt tilbúnir til þess að hverfa frá þeirri leiðinni, ef niðurstaðan er ekki þolanleg.“

Viðbót kl. 12.15: Mér er bent á að grein Sveins Andra hafi fyrst birst á Pressunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Ef Múhameð vill ekki fara til fjallsins verður fjallið að koma til Múhameðs

Svarthöfði skrifar: Ef Múhameð vill ekki fara til fjallsins verður fjallið að koma til Múhameðs
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vinstri græn skamma Moggann – „Til að taka af öll tvímæli“

Vinstri græn skamma Moggann – „Til að taka af öll tvímæli“