Það er ríkisstjórnarfundur. Röð af nýbónuðum svörtum bílum stendur fyrir utan Stjórnarráðið. Það glampar á þá í grámyglu vetrarins, flestir bílar sem aka um göturnar eru ekki svona gljáandi heldur þaktir ryki og seltu.
Bílarnir minna svolítið á líkfylgd. Þetta eru ekki bjartsýnisbílar. Ekki frekar en þessi þunglyndislega ríkisstjórn.