fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Eyjan

Jónas: Brotlending mörgæsanna

Egill Helgason
Sunnudaginn 21. febrúar 2010 14:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur er nýliði í hópi bloggara á Eyjunni. En pistlar hans eru yfirleitt afar fróðlegir.

Í nýjasta pistli sínum sem nefnist Brotlending mörgæsanna skrifar hann meðal annars um kaup þýskra stjórnvalda á upplýsingum um innistæður auðugra Þjóðverja í svissneskum bönkum. Margir skjálfa vegna þessa.

Jónas skrifar:

„Nú er í augsýn, að ekkert fé geti verið geymt á reikningum í skattaparadísum.  Við heyrum hér á landi, að gerðir hafi verið samningar við upplýsingadeildir skattayfirvalda um aðgang að gögnum eða bankastofnunum, sem veita upplýsingar um innistæður.  Um einhverja „pakka“ er að ræða, sem ráða verður í, en íslensk yfirvöld hafa ekki aðgang að reikningum einstakra manna vegna bankaleyndar, sem er á undanhaldi víðast hvar.  Vísast verður hún aflögði í því formi, sem hún er nú, en t.d. stjórnvöld í Þýskalandi munu breyta lögum þarum.  En þá opnast möguleikar til að fá keyptar upplýsingar eins og nú háttar til í Þýskalandi.  Það getur orðið erfitt fyrir íslenska útrásarvíkinga og aðra peningamenn að geyma fé í útlöndum, hvar sem er, af sömu ástæðum.  Hvenær koma CD diskar bara í pósti frá Tortola?  Eða bara tölvugögn í viðhengjum í E-bréfum?  Og þá eiga menn ekki bara að greiða skatta af slíkum eignum heldur einnig sektir, en vísast verður að bæta löggjöfina til að svo geti orðið í raun og sektir það háar, að menn fari að gefa yfirvöldum upplýsingar af sjálfsdáðum.  Já, það verður spennandi að fylgjast með þróuninni.  Og með slíkum uppljóstrunum verður einnig unnt að rannsaka nánar tilurð peningainnistæðna, þ.e. hvernig menn hafa komist yfir þær.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“