Ari Matthíasson skrifaði þessa grein á vef DV í febrúar. Hún á jafn vel við nú og þá:
— — —
„Þegar hið illræmda fyrirtæki Enron fór á hausinn þá kom í ljós að með skipulögðum hætti hafð bókhaldið verið rangfært og stórkostlegum blekkingum hafði skuldum verið komið fyrir í skúffufyrirtækjum og eignir blásnar upp með viðskiptavild, væntingum og kauphringekjum.
Ljóst var að til þess að þetta mætti takast þurfti samstillt átak starfsmanna og endurskoðenda sem vottuðu gerninginn og þáðu fyrir gríðarlega fjármuni. Stórtækast í þessu bralli var stærsta endurskoðunarfyrirtæki heims Arthur Andersen. Þegar ljós var þáttur starfsmanna Andersen í blekkingum Enron var gefin út ákæra á hendur þeim og þar með var grundvellinum kippt undan starfseminni. Ástæðan var sú að fyrirtækið naut ekki lengur trausts. Þar með lauk velgengni hins 90 ára gamla félags.
Nú segist íslenska fjármálaeftirlitið hafa verið blekkt og í kjölfarið hafi hið hollenska og breska fengið upplýsingar sem ekki áttu stoð í raunveruleikanum. Hinar röngu upplýsingar urðu þar með til þess að ekki var stöðvuð söfnun inn á Icesave reikningana í Bretlandi og ekki var komið í veg fyrir opnun slíkra innlánsreikninga í Hollandi.
Þar með er ljóst að þeir starfsmenn sem báru ábyrgð á áhættustýringu, innra eftirliti, endurskoðun og fjárfestingastefnu Lansbankans bera ábyrgð á Icesave. Ekki hefði verið hægt að birta tölur sem sýndu sterka stöðu bankans án aðkomu þeirra. Þessir einstaklingar hafa valdið Íslandi stórkostlegu tjóni. Ég skil ekki hvernig þeir geta talist hæfir til að sinna fjármálaþjónustu eftir þátt sinn í bókhaldsbrellum Landsbanka Íslands.
Endurskoðunarfyrirtæki Landsbankans var Pricewaterhousecoopers. Án uppáskriftar og samþykkis PWC hefði Icesave aldrei orðið til. Um hlutverk endurskoðenda Landsbankans segir t.d. í 24.gr. samþykkta bankans (og er þetta hefðbundið hjá fyrirtækjum):
Endurskoðandi skal endurskoða ársreikning bankans í samræmi við lög og góða endurskoðunarvenju. Endurskoðandi skal að lokinni endurskoðun árita ársreikninginn og skal áritunin fylgja ársreikningnum sem skýrsla hans. Skal ársreikningurinn og endurskoðunarskýrslan liggja frammi a.m.k. vikutíma fyrir aðalfund hluthöfum til sýnis. Senda skal Fjármálaeftirlitinu endurskoðaða ársreikninga í síðasta lagi 3 mánuðum eftir lok reikningsárs.
Það er óskiljanlegt með öllu af hverju fyrirtæki jafn nátengt stærsta efnahagslegu áfalli sem Ísland hefur orðið fyrir, skuli teljast hæft til að koma að málum í nútið sem varðar hag Íslands. Hvernig má það vera að þetta fyrirtæki skuli teljast hæft til að framkvæma rannsókn á bókhaldi annars banka með það að markmiði að „kanna hvort bankinn eða aðilar tengdir honum hefðu á síðustu vikunum fyrir fall bankans vikið frá innri reglum hans eða brotið gegn reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja, lögum um verðbréfaviðskipti eða almennum hegningarlögum“?“