Bakkavararbræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir skilja allt eftir í rjúkandi rúst á Íslandi.
Þetta eru einhverir einkennilegustu athafnamenn sem um getur í sögu íslensks atvinnulífs.
En það er víðar sem bræðurnir vekja athygli fyrir vondan atvinnurekstur. Þeir hafa lengi verið skotspónn verkalýðsfélaga vegna lélegra starfskjara og aðbúnaðar í verksmiðjum Bakkavarar í Bretlandi.
Nú hefur verið boðað til mótmæla við höfuðstöðvar Bakkavarar í Bourne í Linccolnshire.
Á heimasíðu Starfsgreinasambandsins segir um þetta:
„Nú hafa þeir Bakkabræður, Ágúst og Lýður Guðmundssynir ráðist til atlögu gegn verkafólki við ávaxta- og grænmetisiðju Bakkavarar í Bourne í Lincolnshire í Englandi. Störf eru brytjuð niður, laun lækkuð og vinnuskilyrði skert. Þau voru þó fyrir ein þau lökustu í Bretlandi. Efnt verður til mótmælaaðgerða, kröfugöngu og útifundar föstudaginn 17. desember í Spalding þar sem höfðuðstöðvar Bakkavarar eru til húsa. Það er breska verkalýðssambandið Unite the Union, systursamtök Starfsgreinasambands Íslands, sem stendur fyrir mótmælunum. Markmið mótmælanna er að senda skýr skilaboð til stjórnenda Bakkavarar að Unite muni aldrei láta það gerast að félagsmenn þess verði þvingaðir til þessa niðurskurðar baráttulaust.
Unite heldur því fram að þeir Bakkabræður hafi hundsað allar tillögur um samráð við verkalýðshreyfinguna, hvað þá tekið tillit til sjónarmiða hennar um endurskipulagningu í Bourne. Bakkavör heldur því fram að fyrirtækið þurfi að spara fimm milljónir punda til að stöðva taprekstur en Unite telur að tapreksturinn, sé um taprekstur að ræða, stafi fyrst og fremst af óhæfum stjórnendum fyrirtækisins og stjórnunarstíl þeirra. Bakkabræður hafa ekki getað sýnt fram á að niðurskurðurinn sé nauðsynlegur vegna rekstrarins. Unite telur einnig að Bakkavör sé að keyra í gegn niðurskurðinn í Bourne fyrir áramót til þess að komast hjá nýrri löggjöf, the Agency Worker Regulations, um að fyrirtæki skuli meðhöndla alla starfsmenn jafnt og gengur í gildi á næsta ári. Unite mótmælir því að verkafólk í Bourne og fjölskyldur þess sé látið borga fyrir stjórnunarmistök Bakkabræðra.“