Það er spurning hvort verður hægt að hita Icesave aftur upp sem deiluefni. Einhver orðaði það þannig að nú væri enn ein Icesaveaðventan í uppsiglingu.
Ef það er eitthvað hæft í samningsdrögunum sem hafa lekið út er ljóst að kostnaðurinn sem fellur á Íslendinga er miklu minni en hefði getað orðið.
Og sagt að þetta verði hægt að borga úr sjóðum hins fallna Landsbanka.
Auðvitað hefur þetta ekki fengist staðfest, svo allur er varinn góður, en þetta hlýtur að teljast talsverður sigur fyrir þá sem vildu fara sér hægt í málinu og sættu sig ekki við tvo fyrri samninga.
Kannski er þetta mál svo pólitískt að einhver vill fá tækifæri til að lýsa yfir sigri. Það verða tæplega Jóhanna og Steingrímur sem geta það.
En svo er auðvitað spurning hvort einhverjum þyki ekki nóg að gert, þoli enga eftirgjöf í málinu – vilji alls ekki borga neitt.
Þá annað hvort vegna þess prinsíps að Íslendingar eigi ekki að setja krónu í þetta – sem má vel virða – eða vegna þess að Icesave er þægilegur lurkur til að berja ríkisstjórnina með.