Íris Erlingsdóttir skrifar grein um ójöfnuð í Bandaríkjunum á blogg sitt. Hún endursegir hluta úr grein eftir frægan blaðamann og bókarhöfund, Nicholas Kristof. Það er furðulegt að i raun virðist ekkert af stærri stjórnmálaöflunum í Bandaríkjunum hafa alvöru hug á að breyta þessu.
— — —
„Starfs míns vegna ferðast ég reglulega til bananalýðvelda sem eru alræmd fyrir ójöfnuð. Í sumum þessara auðvaldsræða gleypir ríkasta 1% þjóðarinnar 20% af þjóðarkökunni.
En gettu hvað? Nú þarf maður ekki lengur að ferðast til fjarlægra, hættulegra landa til að virða fyrir sér ójöfnuð af slíkri stærðargráðu. Við höfum hann hér heima! Og nú í kjölfar kosninganna sl. þriðjudag er allt útlit fyrir að ójöfnuðurinn versni.
Ríkasta 1% Ameríkana hirðir nú 25% af þjóðartekjunum, 9% meira en árið 1976. Bandaríkin búa nú við meiri ójöfnuð en hefðbundin bananalýðveldi eins og Nicaragua, Venezuela og Guyana.
Forstjórar stærstu bandarísku fyrirtækjanna höfðu árið 1980 42 sinnum hærri laun en meðal launþegi, en 531 sinnum hærri árið 2001. Kannski er þetta það ótrúlegasta: Meira en 80% allrar þeirrar tekjuaukningar sem varð í landinu á bilinu 1980 – 2005 fór til ríkasta 1% af þjóðinni.“