fbpx
Þriðjudagur 22.júlí 2025
Eyjan

Ekki samsæri

Egill Helgason
Þriðjudaginn 27. júlí 2010 14:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er til fólk sem heldur að það sé í gangi samsæri útlendinga um að hirða allt af Íslendingum. Umsátrið var þetta kallað í einni bók.

Þetta er alveg merkileg hugmynd, því voru íslenskir bankamenn sem fóru um ránshendi um alla sjóði á Íslandi, það eru örfáir íslenskir sægreifar sem hafa tekið  yfir sjávarauðlindina og það voru íslenskir útrásarvíkingar sem ætluðu að hirða orkuauðlindina. Þar byrjaði ferlið sem leiddi loks til kaupa Magma á HS-Orku.

Annars hafa útlendingar hafa sáralítinn áhuga á Íslandi, nema ef til vill þegar gýs eldfjall hérna og flugumferð í heiminum stöðvast. Ég hef ferðast talsvert erlendis í sumar; það virðast allir vera búnir að gleyma kreppunni á Íslandi. Eyjafjallajökull þurrkaði hana út í vitund heimsins.

Fyrir utan kröfuhafa bankanna sem eru að reyna að fá peningana sína til baka, en tapa miklu af þeim.

Því er haldið fram að ESB ásælist auðlindir Íslands. Það er mikill reginmisskilningur á því hvernig sambandið virkar. Ýmislegt má að ESB finna en þetta er bull. Fyrir utan að hér höfum við auðlindir sem rétt nægja til að halda uppi 320 þúsund manna samfélagi – í ríkjum Evrópusambandsins búa hátt í 500 milljón manns.

Fyrir stuttu birtist lesendabréf frá Kanadamanni í Grapevine þar sem var fjallað um þetta. Þar sagði:

„The rest of the world is not your enemy, and does not hate Iceland or Icelanders.  You might find it hard to believe, but the vast majority of the world doesn’t even know you exist.  The most press you guys ever get is when a volcano shuts down air traffic IN OTHER COUNTRIES.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Áslaug Arna aftur komin á laun þrátt fyrir námsleyfi – Fær 3,1 milljónir þar til varamaður tekur við

Áslaug Arna aftur komin á laun þrátt fyrir námsleyfi – Fær 3,1 milljónir þar til varamaður tekur við
Eyjan
Fyrir 1 viku

710 klukkustundir og 10 mínútur af þingfundum á árinu en bara 35 frumvörp af 131 samþykkt

710 klukkustundir og 10 mínútur af þingfundum á árinu en bara 35 frumvörp af 131 samþykkt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingfundur hefst kl. 10 – Þrjú mál á dagskrá fyrir sumarfrí

Þingfundur hefst kl. 10 – Þrjú mál á dagskrá fyrir sumarfrí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu