Það eru grimm og furðuleg örlög að pólskur forseti skuli farast á leið í minningarathöfn um fjöldamorðin í Katynskógi.
Lech Kaczynski var umdeildur stjórnmálamaður. En þetta er besta myndin af honum, hún er tekin 1962 þegar hann og tvíburabróðir hans Jaroslaw voru barnastjörnur og léku í kvikmynd sem hét Tveir sem stálu mánanum.