fbpx
Föstudagur 13.júní 2025
Eyjan

Hvað eru skattahækkanirnar að fjármagna?

Egill Helgason
Fimmtudaginn 8. apríl 2010 22:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hafsteinn Gunnar Hauksson hagfræðinemi skrifar grein á Deigluna þar sem hann fjallar um skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Hafsteinn efast um að skattahækkanir og niðurskurður séu rétt aðferð til að lyfta þjóð upp úr kreppu, en veltir um leið fyrir sér í hvað fjármagnið sem aflað er með hærri sköttum á að fara. Hafsteinn skrifar:

— — —

Hvort sem það er rétt metið eða ekki, þá telja ráðherrarnir líklegast að hagstjórnin strandi þessa stundina á ógurlegri skuldsetningu íslenska ríkisins, sem nú nemur um 130% landsframleiðslu. Það þykir ekki svigrúm fyrir frekari hallarekstur, og þar með ekki fyrir lægri skatta. Hvað er það þá sem skattahækkanirnar eru að fjármagna, hverjar eru ástæður þessarar miklu skuldsetningar fyrst hún er ekki eingöngu til að fjármagna hallarekstur?

Ef marka má opinberar tölur eru ástæðurnar þessar helstar: †

Skuldsetning vegna gjaldeyrisforða þjóðarinnar nemur 32% landsframleiðslu.
Kostnaðurinn við hallarekstur ríkissjóðs 2009-2012 nemur 26%.
Endurfjármögnun Seðlabanka Íslands nemur 17%.
Icesave málið nemur 14%.
Endurfjármögnun íslenska bankakerfisins nemur 11%.

Öfugsnúin hagstjórn ríkisstjórnarinnar er semsgat ekki henni einni að kenna – heldur einnig kolómögulegum gjaldmiðli, mistökum embættismanna í Seðlabankanum og ýmis konar mistökum í fjármálageiranum, bæði hjá opinberum- og einkaaðilum. Sök þessara vandamála er ekki eingöngu að finna hjá ríkisstjórninni, þó reyndar telji ég að ríkisstjórnin fari ekki rétta leið að lausn þeirra. Það er kannski rétt að vinstristjórnin sé ein sprungan í pottinum, en það er alveg ljóst að hann er miklu víðar brotinn.

†Ef umfang þessara mála væri talið í dálksentimetrum blaða og mínútum fréttaútsendinga litu hlutföllin líklegast allt öðruvísi út.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Grínverjinn og skautunin

Ágúst Borgþór skrifar: Grínverjinn og skautunin
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóð vaknar en forsætisráðherra dormar áfram

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóð vaknar en forsætisráðherra dormar áfram
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip