Lesandi síðunnar sendi þessar línur.
— — —
Í 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 segir orðrétt:
Stjórn fjármálafyrirtækis skal ekki taka þátt í ákvörðunum um einstök viðskipti, nema umfang þeirra sé verulegt miðað við stærð fyrirtækisins. Einstakir stjórnarmenn skulu ekki hafa afskipti af ákvörðunum um einstök viðskipti.
Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis skulu ekki taka þátt í meðferð máls ef mál varðar:
1. viðskipti þeirra sjálfra eða fyrirtækja sem þeir sitja í stjórn hjá, eru fyrirsvarsmenn fyrir eða eiga að öðru leyti verulegra hagsmuna að gæta í; eða
2. viðskipti samkeppnisaðila þeirra aðila sem ræðir um í 1. tölul.
Hið sama skal gilda um viðskipti aðila sem eru tengdir stjórnarmönnum persónulega eða fjárhagslega.
Auk framangreinds eru í gildi fyrirmæli FME ofl., lög um hlutafélög, alm. hgl. osfrv. sem er nokkuð ljóst að Jón, Pálmi og Lárus brjóta.
Það er kostulegt að þessir menn telji sig ekki bera nokkra ábyrgð á gjörðum sínum. Telur einhver læs maður að af hægt sé að gagnálykta út frá því að að afskipti stjórnarmanna eru bönnuð og komast að þeirri niðurstöðu að afskipti hluthafa séu því ekki bönnuð?
Allir sem hagsmuna eiga að gæta, eftirlistaðilar og aðrir þátttakendur í þessu þjóðfélagi eiga nú að láta reyna á lagaramann. Siðað þjóðfélag horfir ekki upp á svona lagað aðgerðalaust.