fbpx
Miðvikudagur 13.ágúst 2025
Eyjan

Himinhrópandi ráðleysi í skipulagsmálum

Egill Helgason
Þriðjudaginn 6. apríl 2010 13:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú þegar ríkisstjórnin efnir ti framkvæmda er með ólíkindum að svonefnd Samgöngumiðstöð við Reykjavíkurflugvöll skuli verða fyrir valinu.

Enn er allt óráðið með framtíð flugvallarins, á aðalskipulagi er gert ráð fyrir að hann víki.

Þetta er á sama tíma og ekki er til fé til að halda uppi almennilegri slökkviliðsvakt eða flugumferðarstjórn á vellinum.

Það er heldur ekkert vit í að stefna langferðabifreiðum á þennan stað sem er langt í frá að vera miðsvæðis í bæjarlandinu. Og áform um að strætó gengi þangað í stórum stíl eru vitleysa.

Og þess vegna er þetta ekki annað en ný flugstöð, undir dulnefni.

Einna verst er þó, og það snýr að borgarstjórninni í Reykjavík sem virðist ætla að láta þetta yfir sig ganga án þess að mögla – nefnilega hvernig skipulagsmál í Vatnsmýrinni hafa þróast.

Þar eru nú komnar stórar umferðargötur sem skera svæðið þvers og kruss, og við bætist stórbygging Háskólans í Reykjavík með ógurlegu flæmi bílastæða sem geta vart talist annað en umhverfisslys.

Allt ber þetta vitni himinhrópandi ráðleysis í skipulagsmálum.

samgongumidstod

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing
Eyjan
Fyrir 5 dögum

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Yrkir byggir upp í Urriðaholti

Yrkir byggir upp í Urriðaholti