Það þarf að fá skýringar á því hvers vegna fleiri konur leita til neyðarmóttöku á Íslandi en á Norðurlöndunum líkt og kemur fram í þessari frétt á Eyjunni.
Þetta bendir til að nauðganir og ofbeldi gagnvart konum sé algengara hér en á Norðurlöndunum.
Hver er þá skýringin? Er þetta eitthvað menningarbundið?
Varla er hægt að kenna útlendingum um; það eru ekki færri innflytjendur á Norðurlöndunum en hér.
Hvað með áfengið og skemmtanalífið svokallað?
Það er hömulausara hér en víðast hvar – síðla nætur í áfengisvímu gerast oft skelfilegir hlutir.