Það er ekki mikið af góðum fréttum úr fjölmiðlaheiminum þessa dagana. Fjölmiðlarnir hér eru veikburða og fjárvana, og svo berjast þeir sumir undir ægivaldi eigenda sem rýja þá trúverðugleikanum.
Þess vegna eru fréttirnar sem bárust af DV í dag góðar.
Lilja Skaftadóttir sem eignast stærsta hlutinn í blaðinu var framleiðandi heimildarmyndarinnar Maybe I Should Have? Hún virðist ekki hafa nein tengsl við flokka eða fylkingar hér, umfram að hún var á lista Borgarahreyfingarinnar fyrir síðustu kosningar. Á semsagt ekki hagsmuna að gæta að afbaka sumt í fréttaflutningnum eða þegja yfir öðru.
Reynir Traustason ritstjóri á stóran hlut, en í hópi hluthafa eru aðrir starfsmenn af blaðinu.
Þetta er djörf tilraun, ekki víst að hún gangi upp – reynsla erlendis frá sýnir að það gefst ekki alltaf vel að blaðamenn eigi fjölmiðilinn sem þeir skrifa í – en það er full ástæða til að fylgjast af athygli með DV á næstunni.