G. Valdimar Valdemarsson skrifar um íslenska flokkakerfið, hvernig flokkarnir eru meira og minna klofnir innbyrðis, hugmyndafræðilegar krísur, hagsmunagæslu – og sérstaklega litla stefnufestu sem virðist vera einkenni á flokkunum hér, enda urðu þeir til á öðrum tíma og við önnur skilyrði en eru nú. Niðurstaða höfundar er svohljóðandi:
„Þegar flokkakerfið er skoðað í þessu ljósi er ekki að undra að kjósendur treysti ekki flokkunum. Þeir eru allir meira og minna klofnir og í innbyrðis átökum sem menn forðast að leysa til að halda flokknum saman. Á meðan geta þeir trauðla unnið hver með öðrum eða áunnið sér traust hjá kjósendum.“
Greinina má lesa í heild sinni með því að smella hérna.