Á Facebook geisar mikil umræða um nafn á fellinu sem er að myndast í eldsumbrotunum á Fimmvörðuhálsi.
Það heyrast nöfn eins og Kreppa, Afleiða, Ísbjörg, Góa, Trafali, Hálsliður, Heljarhrun, Heljarþröm, Sjöttavarða, Hálsbólga, Sexan, Hálf sex – af því það er svo lítið – og Tuðtindur.
Svo eru sumir sem segja að þetta eigi ekki að heita neitt því það sé ekki almennilegt fjall – a.m.k. ekki ennþá.