Sumir bókaflokkar eru endingarbetri en aðrir.
Þannig er til dæmis með útgáfu hins svokallaða Fornritafélags á Íslendingasögunum. Útgáfan hófst um 1930 og gekk nokkuð greiðlega framanaf. Svo hægðist á, og seint og um síðir uppgötvaðist að allir sem voru í stjórn Fornritafélagsins voru dánir.
Þá var drifið í að kjósa nýja stjórn, og enn eru að koma út fornsögur undir nafni Fornritafélagsins.
Á þjóðhátíðinni 1974 var ákveðið að ráðast í ritun sögu Íslands. Hún hefur verið að koma út smátt og smátt síðan þá og hefur Hið íslenska bókmenntafélag séð um útgáfuna.
Bókmenntafélagið er elsta félag á Íslandi og mælir tímann í öldum en ekki árum eða áratugum.
Nú loksins hillir undir lok útgáfunnar, því ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita styrk til að koma út síðasta bindinu sem á að fjalla um tuttugustu öldina.
Og samkvæmt frétt Morgunblaðsins mætti jafnvel álykta að nú hilli undir hin margumtöluðu endalok sögunnar.