fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Eyjan

Arðurinn af auðlindinni

Egill Helgason
Laugardaginn 13. mars 2010 08:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lesandi síðunnar sendi þessar línur í tengslum við umræður um fiskveiðistjórnun:

— — —

Það er áhugavert, Egill, að þú skulir nefna norsku olíulindirnar til samanburðar.

Ég get ekki betur séð af heimildum á netinu en að norski olíuiðnaðurinn sé að stærstum hluta einkafyrirtæki. Statoil er t.d. ekki nema að hluta í eigu norska ríkisins. Það er ekki norska ríkið sem dælir upp og selur út alla olíuna -tekjur þeirra af olíuauðlindunum koma í gegnum sölu á borunarleyfum og skatta á þá olíu sem dælt er upp.

Norskir borgarar hafa ekki frjálsan aðgang að þessari sameiginlegu auðlind, og umsópsmestu orkufyirrtæki/bensínstöðvar/hvaðeina hafa engan hefðarrétt á nýtingu þeirra. -Auðlindin er boðin út og tilboði hæstbjóðanda tekið -að mér sýnist og hver tunna síðan skattlögð að auki. (og má þó gjarna leiðrétta mig ef einhver hérna þekkir norska olíuiðnaðinn betur, ég er bara rétt búinn að skrapa yfirborðið á wikipediu um þetta)

Susararnir eru part á rangri, og part á réttri braut. Sjávarauðlindirnar verða best nýttar á frjálsum markaði og eignarhaldi einstaklinga, en það fæst ekki með því að gefa nýtingarréttinn sísvona. Ríkið ætti ekki að eiga kvóta né úthluta honum byggt á veiðihefð eða byggðapólitík. Selja ætti allan kvóta hæstbjóðendum, hvert fiskveiðiár, -sama hvort hæstbjóðandinn er íslenskur eða erlendur.

Þannig er einskis frelsi skert, né heldur neinum gefin verðmæti á silfurfati. Nýting auðlindarinnar er hins vegar hámörkuð, hagkvæmni í rekstri hámörkuð og uppskera landsmanna sem heildar hámörkuð.

En nota bene, tekjurnar af sölu að aðgangi að þessari auðlind þjóðarinnar ættu ekki að hverfa inn í ríkisrekstragrautinn, heldur ætti hver handhafi íslensks vegabréfs að fá sinn skerf lagðan inn á reikning. Þannig er líka tryggt að almenningur hafi beina hagsmuni af því að kerifð sé skilvirkt, heiðarlegt og sannarlega hagkvæmt. Beingreiðslur til landsmanna eru í raun að gera eignarréttinn raunverulegan, en það er einmitt eignarréttur einstaklingsins sem tryggir að mestum verðmætum sé náð úr hvaða auðlind sem er. -Ranghugsunin hjá SUS er að færa þennan eignarrétt á silfurfati í hendur útgerðarmanna þegar sterk rök hníga að því að fiskurinn í sjónum sé í raun náttúruauðlind sem öll þjóðin eigi að njóta góðs af, eða öllu heldur að enginn hópur manna í samfélaginu eigi meira tilkall til en aðrir.

Það þarf vitaskuld að útfæra vissa núansa og eftirlit, til að koma í veg fyrir brottkast og sjá til þess að vel sé gengið um auðlindina, en meginlínurnar eru samt skýrar.

Athugaðu að t.d. bara veiðiheimildir á þorski á síðasta ári námu um 541 kg á hvert mannsbarn á landinu -og það er bara ein tegund. Ef daglegt meðalverð á óslægðum þorski er 300kr á fiskmarkaði, og útgerðin borgar 1/5 af verði fisksins fyrir að nýta auðlindina myndi það vera 30-35.000 kr inn á reikning hjá hverju mannsbarni. (athugaðu þó að hér reikna ég að verðið á „kvótanum“ sé 60 kr, en fann t.d. heimild á netinu frá 2007 um 200 kr/kg verð á keyptum kvóta af þorski)

Aflaheimildir á þorski voru 130 þúsund lestir á fiskveiðiárinu 08/09, en aflaheimildir á öðrum botnfiski 264,4  þúsund lestir, og öðrum tegundum 159 þúsund lestir. Það má því hæglega reikna áfram að ef rétturinn til að veiða fisk í íslenskri lögsögu væri seldur hæstbjóðanda en ekki úthlutað þá gæti hvert íslenskt mannsbarn átt von á að fá í sinn hlut ekki minna en 100.000 kr árlega -og liklega tvöfalt það, ef ekki þrefalt, fjórfalt og jafnvel fimmfalt.

Til að draga þetta saman: ef allur kvóti væri boðinn upp og seldur hæstbjóðanda, og söluverðmætinu deilt jafnt á alla landsmenn, myndi ekki aðeins nýting, hagkvæmni og verðmætasköpun í sjávarútvegi ná hámarki, heldur myndi hvert vísitöluheimili á landinu fá í sinn hlut árlega sennilega á bilinu 0,5 til 1,5 milljónir í „arð“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Margir sem náð hafa hálfs árs aldri hafa komið minna í verk

Margir sem náð hafa hálfs árs aldri hafa komið minna í verk
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Myndum við berja hvolpa til bana með lurk eða drekkja hundum?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Myndum við berja hvolpa til bana með lurk eða drekkja hundum?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“