fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Eyjan

Svört skýrsla um bankana, Seðabankann og krónuna

Egill Helgason
Föstudaginn 12. mars 2010 09:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skýrsla Bjarna Kristjánssonar, hagfræðings og fyrrverandi gjaldeyrismiðlara, um það hvernig bankarnir unnu gegn íslensku krónunni er stórmerkilegt plagg. Ég hef margsinnis fjallað um þetta, allar götur frá því fyrir hrun, og oft fengið skammir fyrir.

Valdir kaflar úr skýrslu Bjarna voru birtir í Kastljósinu í kvöld í umfjöllun Helga Seljan.

Þeir sem koma verst út úr skýrslunni eru Kaupþing, sem var í fararbroddi í árásinni á krónuna. Um þessar stöðutökur sagði í Kastljósi:

„Jafnframt eru tiltekin viðskipti bankanna með gjaldeyri á síðustu árum rædd í skýrslunni og hvernig þau hafi farið fram úr þeim vörnum sem eðlilegar gátu talist og miðuðust við hlutfall af eigin fé bankanna, eða 60-70%. „Það er ljóst að bankarnir náðu að kaupa upp allt sitt eigið fé í gjaldeyri og meira.“ Um mitt ár 2008 hafi heildareigið fé bankanna þriggja verið 839 milljarðar króna „en skortstöður þeirra á krónunni voru  á sama tíma ISK 883 milljarðar“. „Þá voru þeir samtals komnir töluvert umfram eigið fé sitt í kaupum sínum eða sem nam 105% af eigin fé,“ eins og segir í skýrslu Bjarna.“

Og Seðlabankinn:

Seðlabankinn hafi tekist á við krísuna sem upp kom hér árið 2006 með því rýmka enn frekar heimildir bankanna til að kaupa gjaldeyri.

„…með undanþágum leyfði hann bönkunum að kaupa gjaldeyri í stórum stíl. Tók það aðeins um 1000 daga fyrir bankana að keyra krónuna og landið í heild sinni í kaf.“

„Seðlabanki Bandaríkjanna myndi ekki undir neinum kringumstæðum  leyfa þvílíka sölu á dollurum. Enda brjálæði í samhengi við eðlilegar tölur í hvaða hagkerfi sem er.“

Bjarni rekur einnig persónuleg samskipti sín við starfsmenn Seðlabankans og er ekki hrifinn. Hann hafi ítrekað reynt að bjóða Seðlabankanum gjaldeyri til kaups meðan hann var viðskiptavaki á millibankamarkaði með gjaldeyri hjá Landsbankanum um tólf ára skeið.

„Óhætt er að segja að ég hef ekki tölu á því hve oft ég hringdi í Seðlabankann, síðustu fimm ár fyrir hrun, og bauð þeim að kaupa gjaldeyri á gjafverði, eitthvað sem ég taldi að þeim bæri skylda til að gera. Ég held að ég geti fullyrt að ég hafi hringt 25-40 sinnum,“.

Svar Seðlabankans var hins vegar alltaf á sömu lund: „farðu með þetta á markaðinn.“ Bjarni fullyrðir að með þessu hafi Seðlabankamenn misskilið hlutverk sitt með alvarlegum afleiðingum.

„Í raun voru það viðskiptabankarnir sem áttu stærsta einstaka þátt í veikingu krónunnar með leyfi Seðlabankans,“ segir Bjarni sem telur að pólítískar ráðningar í efstu lög Seðlabankans hafi valdið því að svo fór sem fór, þar sem sérpólitískir hagsmunir hafi ráðið fremur en faglegt mat.“

Kastljós gærkvöldsins má sjá með því að smella hérna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Rogers á óskalistanum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan