Lesandi síðunnar sendi þessar línur.
— — —
Í grein í viðskiptakálfi Mbl í gær („Hversu mikið var fall bankann aá heimsmælikvarða?“ eftir Jared Bibler) var rakið hvernig gjaldþrot íslensku bankanna er meðal stærstu gjaldþrota í heimi. Stærra en bæði þrot WorldCom og Enron. Einungis gjaldþrot Lehman og Washington Mutual er stærra.
Þessi listi yfir stærstu gjaldþrot veraldar er svohljóðandi:
1. Lehman Brothers 2008.
2. Washington Mutual 2008.
3. Íslensku bankarnir þrír 2008 (ef allir eru teknir saman sem ein heild).
4. WorldCom 2002.
5. General Motors 2009.
6. Kaupþing 2008.
7. CIT Group 2009.
8. Enron 2001.
9. Conseco 2002.
10. Landsbankinn 2008.
11. Glitnir 2008.
Það er athyglisvert að forstjórar bæði WorldCom og Enron fengu meira en 20 ára fangelsi.
Og nú virðist útlitið heldur dökkt fyrir forstjóra Lehman.
Í dag birtist eftirfarandi frétt á vef CNBC (http://www.cnbc.com/id/35824773):
„Lehman Brothers used accounting gimmicks and had been insolvent for weeks before it filed for bankruptcy in September 2008… Lehman, which is now liquidating for the benefit of creditors, could have claims against former Lehman chief executive Dick Fuld and chief financial officers Chris O’Meara, Erin Callan and Ian Lowitt for negligence or breach of fiduciary duty…The examiner said there was also sufficient evidence to support a possible claim that the firm’s auditor, Ernst & Young, had been „negligent“ and that Lehman could pursue claims against the firm for „professional malpractice.“
Hvað bíður íslensku bankastjóranna? Og endurskoðenda íslensku bankanna?
Kannski eru þeir afskaplega heppnir að þetta voru ekki bandarísk fyrirtæki undir lögum villta vestursins, heldur íslensk fyrirtæki undir lögum brjálaða norðursins?