Könnun Félagsvísindastofnunar um menningarneyslu landans er í raun mikill sigur fyrir menningarlífið í landinu. Niðurstöðurnar eru í raun miklu betri fyrir það en mann hefði órað fyrir.
Þannig höfðu 82 prósent aðspurðra lesið bók sér til ánægju.
60,1 prósent höfðu farið á leiksýningu.
58,6 prósent höfðu farið á tónleika.
52,6 prósent höfðu farið á myndlistarsýningu.
75,6 prósent höfðu farið í kvikmyndahús, 46,3 prósent höfðu séð íslenska kvikmyndi í bíói.
Það kom líka fram að mun fleiri, 56,5 prósent, vilja efni sem tengist menningu og listum í sjónvarpi en íþróttaefni.
En 37,7 prósent svarenda höfðu sótt íþróttaviðburð á árinu.