Á vefnum Rebel Economist er löng grein um Ísland og Icesave undir fyrirsögnini On thin ice. Þar er meðal annars fjallað um innistæðutryggingakerfi Evrópusambandsins, kröfur Breta á hendur Íslendingum, ábyrgð íslenska ríkisins, ábyrgð almennings á lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum, hin svonefndu hryðjuverkalög, hugsanlega samábyrgð Breta og hversu mikið Icesave muni i raun kosta íslenska ríkið. Greinarhöfundur telur að það séu ekki óbærilegar upphæðir.