Í Kiljunni á morgun förum við til Grindavíkur og hittum Guðberg Bergsson. Fyrir skömmu kom út eftir hann bókin Öll dagsins glóð, en það er sýnisbók ljóðlistar frá Portúgal sem hann hefur tekið saman og þýtt. Eins og kemur fram í viðtalinu hefur Guðbergur nýverið skilað af sér handriti að nýrri skáldsögu til forleggjara síns.
Við skoðum erlendar útgáfur á verðlaunabókinni vinsælu Sögunni af bláa hnettinu eftir Andra Snæ Magnason, en hún hefur komið út á meira en tuttugu tungumálum.
Kolbrún og Páll fjalla um Gerplu, þ.e. skáldsöguna eftir Halldór Laxness, ekki leiksýningu Baltasars Kormáks, og Loftkastalann sem hrundi, síðasta bindið í Millenium þríleik Stiegs Larsson.
En Bragi talar um Steingrím Hermannsson.