Saga Finns Ingólfssonar er mjög sérstæð.
Hann var viðskipta- og iðnaðarráðherra og barðist hart fyrir stóriðju á Íslandi. Hann var aldrei vinsæll maður en þótti duglegur og var mjög öflugur innan síns flokks og bak við tjöldin. Halldór Ásgrímsson reiddi sig mjög á hann.
Finnur hættir svo óvænt í stjórnmálum og býr svo um hnútana að hann verður seðlabankastjóri.
Þar er hann bara skamma hríð, enda var hugur hans aldrei á Kalkofnsveginum, ekki fremur en hugur seðlabankastjórans sem síðar kom.
Hann verður allsherjar reddari fyrir hóp manna í viðskiptalífinu þar sem eru fremstir í flokki Ólafur Ólafsson og Þórófur Gíslason, starfar á mörkum stjórnmálanna og viðskiptanna þar sem hin miklu tengsl hans koma mjög til góða. Verður forstjóri Vátryggingafélagsins sem hafði verið selt út úr Landsbankanum með mjög sérkennilegum hætti – VÍS verður síðan eitt þeirra félaga sem kaupir Búnaðarbankann – verður stjórnarmaður í KB-banka eins og hann hét þá, er einn af mönnunum sem tekst að brenna upp eignir Samvinnutrygginga , eignast stóran hlut Icelandair í gegnum kaup á félagi sem nefnist Langflug og var í eign áðurnefnds eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga, öðru nafni Gift. Er þá ekki allt upp talið.
Þetta veldi er að mestu hrunið –og nú þarf að fara að afskrifa skuldirnar af Finni – en miðað við hvernig er staðið að málum í bönkunum er ekki óhugsandi að S-hópurinn eigi gott kombakk.
Ein frægasta fréttamynd síðari ára. Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson aka hróðugir burt úr Ráðherrabústaðnum eftir að hafa keypt Búnaðarbankann. Myndin er eftir Þorkel Þorkelsson ljósmyndara og birtist í Morgunblaðinu.