fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Eyjan

Menningin blómstrar í kreppunni

Egill Helgason
Mánudaginn 22. febrúar 2010 15:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki hægt að segja annað en að menningin dafni ágætlega í kreppunni.

Í leikhúsunum eru sýningar sem vekja umtal og jafnvel deilur: Gerpla, Fást, Góðir Íslendingar.

Með Sinfóníuhljómsveitinni sem hefur aldrei verið betri spila framúrskarandi ungir einleikarar: Víkingur Ólafsson og Sæunn Þorsteinsdóttir.

Í kvikmyndahúsunum er verið að sýna fínar íslenskar myndir við góða aðsókn: Bjarnfreðarson og Mömmu Gógó.

Veglegt yfirlitsrit um nútíma myndlist á Íslandi gefur til kynna ágæta grósku á því sviði. Kristján Guðmundsson fær Carnegie listaverðaunin, en Erró sýnir í Pompidou safninu í miðri París.

Það eru fjórar nokkuð veglegar bókabúðir í miðborg Reykjavíkur.

Það er metaðsókn á bókamarkað í Perlunni. Bókaútgáfan á þessum síðustu tveimur kreppuárum hefur verið mjög blómleg.

Guðbergur þýðir portúgölsk ljóð og Kristján Árnason þýðir Óvíd, en Helgi Björnsson fær verðlaun fyrir stórvirki um jökla á Íslandi.

Og svo má lengi telja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Vinstri græn skamma Moggann – „Til að taka af öll tvímæli“

Vinstri græn skamma Moggann – „Til að taka af öll tvímæli“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þungt högg fyrir Demókrata

Þungt högg fyrir Demókrata