fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Eyjan

Kvótanefnd: Tillögur Finnboga Vikars

Egill Helgason
Sunnudaginn 21. febrúar 2010 18:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Finnbogi Vikar Guðmundsson, fulltrúi í nefnd um endurskoðun á fiskveiðistjórnun, var í Silfri Egils í dag og kynnti hugmyndir sínar til lausnar á deilunum um stjórnun fiskveiða. Hér eru tillögur hans sem byggja meðal annars á nýtingarrétti til nokkuð langs tíma sem yrði úthlutað eftir veiðreynslu undangenginna þriggja ára.

Viðtalið við Finnboga má sjá hérna.

— — —

Tillögur fyrir starfshóp um endurskoðun á fiskveiðistjórnun.

Lagt fram á fundi starfshópsins 19.  febrúar 2010 af fulltrúa Hreyfingarinnar

Fiskveiðistjórnunarkerfið verði stokkað upp og núllstillt 1. september 2010.  Allur vafi tekinn af að aflaheimildir eru tímabundinn nýtingarréttur.

Útgerðum boðið að gera nýtingarréttarsamning  til 15 ára sem byggir á veiðireynslu síðustu 3 fiskveiðiára.

Vannýttar aflaheimildir síðustu 3 fiskveiðiára skulu verða gerðar aðgengilegar sem 15 ára nýtingarsamningur eða leigðar út innan fiskveiðiársins á Kvótaþingi.

Til að byrja með verður 3 ára reynslutími á kerfinu og síðan verður gerður 15 ára nýtingarsamningur.

Á 10 ára fresti skal útgerðum standa til boða að endurnýja nýtingarréttinn og skulu ströng skilyrði gilda um nýtinguna.

Útgerðin greiði 10% gjald fyrir nýtingarréttinn í Sjávarauðlindasjóð sem miðast við aflaverðmæti upp úr sjó og skal gjaldið greitt óháð því hvort aflaheimildirnar eru nýttar eða ekki.

Sjávarauðlindasjóður mun greiða út árlega. Miðað skal við að 50% renni til sveitarfélaga og 50% til ríkis. Sjávarbyggðir skulu hafa sérstakan forgang umfram aðrar byggðir sem ekki byggja afkomu sína á sjávarútvegi við úthlutunina.

Hagnaður af sölu aflaheimilda skal skattlagður um 75%.

Veiðiskylda verði 75%.

Kvótaþing endurvakið og verði opinber miðstöð miðlunar á aflaheimildum.

Heimilt verði að leigja eða skipta frá sér 25% aflaheimilda innan fiskveiðiársins og skal gilda hámarksverð á leiguverði. Útgerðir sem hyggjast leigja frá sér eða skipta, leggja aflaheimildir inn til Kvótaþings og fá í staðinn aðrar heimildir ef áhugi er fyrir hendi og aflaheimildir á lausu.

Þegar útgerð leggur inn aflaheimildir til Kvótaþings, þá skal útgerð losna undan þeirri kvöð að greiða Sjávarauðlindasjóðsgjald af þeim. Engin hagnaðarvon skal vera fyrir útgerð til að vera með nýtingarréttarsamning á aflaheimildum frá ríkinu og leigja þær út til þriðja aðila til nýtingar.

Útgerð sem leigir aflaheimildir á Kvótaþingi skal því einungis greiða 10% Sjávarauðlindasjóðsgjaldið fyrir leigu á aflaheimildunum.

Fjárhagslegur aðskilnaður fiskvinnslu og útgerðar.

Allur fiskur verði seldur á innlendum fiskmarkaði eða greitt markaðsverð fyrir afla sem landað er beint til vinnslu. Það er gert til að tryggja sjómönnum rétt verð fyrir aflann og efla fullvinnslu á Íslandi með auknu aðgengi að hráefni.

Sjómenn á frysti- og vinnsluskipum skulu fá uppgert miðað við söluverðmæti afla frá síðasta tengda aðila útgerðarinnar.

Bann við veðsetningu aflaheimilda með skipi jafnt sem án.

Bann við eignaskráningu aflaheimilda í bókhaldi fyrirtækja.

Heimild til að flytja aflaheimildir á milli fiskveiðiára verði takmarkaður við 5%.

Aflaheimildir sem falla niður ónýttar og ekki hægt að flytja yfir á næsta fiskveiðiár, skulu verða boðnar til leigu á Kvótaþinginu, strax á næsta fiskveiðiári.

Hámarks aflahlutdeild í einstökum tegundum verði minnkuð til að skapa betra samkeppnisumhverfi í sjávarútvegi og koma í veg fyrir fákeppni.

Frjálsræði við strandveiðar verði stóraukið og afli verði seldur á innlendum fiskmarkaði.

Tegundatilfærslur verði þrengdar verulega.

Línuívilnun verður aukin og látin ná til beitningarvélabáta líka og þannig stuðlað að umhverfisvænum veiðum. Skilyrt verði að línuívilnun nái einungis til afla sem landað er á innlendan fiskmarkað.

Bátar og skip sem stunda netaveiðar á grálúðu, ufsa og skötusel skulu fá ívilnun upp að 10% í viðkomandi tegundum af þeim afla sem seldur er á innlendum fiskmarkaði.

Meðafli við rækju- og humarveiðar verði heimilaður upp að 10%, sem ekki reiknast af aflaheimildum skips eða útgerðar samkvæmt nýtingarsamningi og er seldur á innlendum fiskmarkaði. Útgerðum er  ekki er skylt að leigja aflaheimildir sem rúmast innan þessara marka á Kvótaþingi.

Heimilaður verði 5% meðafli í löngu, keilu og skötusel við almennar veiðar og seldur er á innlendum fiskmarkaði.

Sveitarstjórnum verði veittar auknar heimildir til að stöðva flutning á aflaheimildum frá byggðalagi, ef fyrirséð er að 50% eða meira af heildar aflaheimildum byggðalags, verði fluttar frá byggðalagi.

Virðingarfyllst

Finnbogi Vikar

324452_258_previewFinnbogi Vikar, sjómaður og laganemi: Athyglisverðar tillögur til málamiðlunar í erfiðri deilu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“