fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Eyjan

Frjálshyggja og hormónar

Egill Helgason
Sunnudaginn 21. febrúar 2010 09:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar maður sér listann yfir hina nýju stjórnarmenn Frjálshyggjufélagsins veltir maður því fyrir sér hvort frjálshyggja sé að einhverju leyti tengd hormónaframleiðslu líkamans.

Þarna eru bara karlmenn, nítján talsins, og ég held sé rétt hjá mér að þeir séu flestallir frekar ungir að aldri.

Það mætti jafnvel gera sérstaka rannsókn á þessu, frjálshyggja og hormónastarfsemi ungra karlmanna.

Eða hvar eru konurnar?

Frjálshyggjumennirnir koma til varnar auðmönnunum sem settu Ísland á hausinn. Varla hafa aðrir orðið til þess svo það er að vissu leyti vasklegt. Og manni vöknar um augu þegar maður les að hér sé nánast farið með auðmenn eins og gyðinga á tíma þriðja ríkisins.

Svo má jafnvel segja, eins og einn lesandi bendir á, að þessi stjórn sé hálfgert „bákn“. Nítján í stjórn, á fundi sem var ekki ýkja fjölmennur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“