fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Eyjan

Kyrrsetning á eignum íslensku bankanna fyrir hryðjuverkalög

Egill Helgason
Miðvikudaginn 16. desember 2009 08:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stundum hefur manni fundist að Sigrún Davíðsdóttir hafi rödd hrópanda í fjölmiðlaflórunni íslensku. Hún hefur grafið upp alls kyns upplýsingar, en það er eins og þær hafi ekki náð að rata inn í umræðuna hér heima. Það er stundum líkt og hún sé eini íslenski fjölmiðlamaðurinn sem kann að afla upplýsinga í útlöndum.

Hún hefur til dæmis margsinnis fjallað um aðgerðir breska seðlabankans gegn íslensku bönkunum í byrjun október í fyrra – áður en hinum svokölluðu hryðjuverkalögum var beitt.

Það var 3. október að beski seðlabankinnleggur þá kvöð á Landsbankann og Kaupþing í Bretlandi að innlagnir í bankana færu ekki þangað inn heldur á sérstakan reikning í seðlabankanum breska. Tilskipunin var afturvirk um einn dag, átti að taka gildi 2. október.

Eitt sem hefur vakið furðu í þessu er að Seðlabankinn á Íslandi skuli hafa lánað Kaupþingi fé eftir að Bretar gripu til þessara aðgerða. Má spyrja hvort Seðlabankanum hafi verið ókunnugt um þessa atburðarás?

Sigrún skrifaði 26. júní síðastliðinn:

En já, bresku aðgerðirnar komu ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti – þær voru saga í nokkrum köflum. Aðgerðir breska fjármálaeftirlitið hófust ekki 8. október, heldur 3. október. Þær aðgerðir voru leynilegar – innstæðueigendur hefðu auðvitað gert áhlaup á bankana ef þetta hefði frést en skilanefndir bankanna hér opinberuðu þetta í apríl. Það væri þó afar undarlegt ef stjórnendur bankanna hefðu ekki upplýst Seðlabankann um þessar aðgerðir. Og einkum undarlegt ef Kaupþing hefur ekki gert það þegar samið var um 80 milljarða króna lánið.

Það dugir ekki að halda því fram að þessi aðgerð FSA gegn bönkunum tveimur hafi bara verið einhvers konar aðvörun. Þetta var engin aðvörun – það var blóðug alvara. Aðgerðirnar voru rökstuddar með því að viðkomandi bankar uppfylltu ekki lengur skilyrði fyrir starfsleyfi og verið væri að vernda fjármálastöðugleika landsins og innistæðueigendur. Út úr þessari klemmu gátu bankarnir ekki smeygt sér nema að komast í pening – og hvar áttu þeir að gera það eins og ástandið var?

Morgunblaðið er með frétt í anda þessara upplýsinga Sigrúnar í dag. Þar segir að í raun hafi eignir Landsbankans í Bretlandi verið kyrrsettar fimm dögum áður en hryðjuverkalögunum svonefndu var beitt gegn bankanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Gamalkunnur söngur bankanna ómar – þarf kannski bara að breyta leikreglunum?

Orðið á götunni: Gamalkunnur söngur bankanna ómar – þarf kannski bara að breyta leikreglunum?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing
Eyjan
Fyrir 1 viku

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?